Skilmálar

Skilmálar vefverslunar Naturalmat (Náttúrurúm ehf.)

Velkomin í vefverslun Naturalmat sem er í eigu og rekstri Náttúrurúma ehf. kt. 580621-0900, Grensásvegi 46, 108 Reykjavík, Ísland. VSK nr. 141761. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Naturalmat.

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Naturalmat samþykkir þú þessa skilmála.

1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR

Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.

2. VÖRUÁBYRGÐ

Vöruskil

Skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu vöru. Nauðsynlegt er að varan sé í upprunalegu ástandi. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Starfsmaður Naturalmat metur ástand vöru og hvort hún sé endursöluhæf. Naturalmat áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða endurgreiða vöru með afskriftum.

Endurgreiðsla nær ekki til flutningskostnaðar sem fellur til við afhendingu eða vöruskil. Vinsamlegast sendið tölvupóst á matti@matti.is fyrir spurningar varðandi skilavöru.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Náttúrurúm ehf. allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu. Vinsamlegast sendið tölvupóst matti@matti.is varðandi gallaða vöru.


3. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA

Við kappkostum að hafa réttar lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

4. VERÐ

Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Afhendingarleið er valin í lok pöntunar sem getur leitt til aukins sendingarkostnaðs.

5. FERILL PANTANA

Vefverslun þessi dreifir frá verslun Naturalmat að Grensásvegi 46, 108 Reykjavík. Ef viðskiptavinur ætlar að sækja pöntun sækir hann þangað.

Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 11:00 til að vera afgreiddar samdægurs.

í einhverjum tilfellum eru vörur sérpantaðar og getur það þá tekið mislangan tíma. Best að hafa samband við matti@matti.is varðandi sérpantanir.

Allar pantanir á smávöru yfir 20.000 kr. án vsk. eru sendar án sendingarkostnaðar.

Allar smávörupantanir eru sendar með póstinum eða eftir samkomulagi við verslun netfang matti@matti.is

Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Þegar vara er farin í af stað berst þér staðfesting þess eðlis. Ekki er boðið upp á rekjanlegar sendingar. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga.

6. GREIÐSLULEIÐIR

Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun Kaffihúsa Kaffitárs:

Visa

Visa debitkort

Mastercard

Maestro

JCB


7. GREIÐSLUVANDAMÁL

Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

8. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS

Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Undir lok pöntunarinnar flytur síðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar.
Hins vegar geta gamlir vafrar verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.

9. SENDINGAR

Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. 

10. BREYTINGAR Á PÖNTUN

Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 12-16. Fyrirspurnir sendist á  á matti@matti.is.
Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á

 

12. HÖFUNDARÉTTUR

Allt efni í vefverslun, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu Náttúrurúm ehf. og er höfundarvarið.
Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis okkar.

13. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING

Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Ef skila á vöru skal kaupandi koma athugasemdum til skila til starfsmanna Náttúrurúm ehf. innan sólarhrings frá móttöku vöru er einungis hægt að skipta eða skila gegn framvísun kassakvittunar

Vöru er einungis hægt að skila í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi
Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið iceland@naturalmat.co.uk.

14. PÓSTLISTI

Með því að skrá þig á póstlistann okkar þá samþykkir þú að fá tölvupósta frá okkur. Við sendum vanalega tölvupóst 1-4 sinnum í mánuði, það getur verið breytilegt eftir tíma ársins.

Ef þú vilt afskrá þig af póstlistanum þá geturðu smellt á link sem er í öllum tölvupóstum frá póstlistanum þar sem boðið er upp á afskráningu.