Persónuvernd

Persónuverndarstefna

Vinnsla persónuupplýsinga

Tegundir persónuupplýsinga, tilgangur vinnslunnar og heimildir fyrir henni

Til þess að Náttúrurúm ehf. geti afgreitt þig í vefversluninni og veitt þér þá þjónustu sem boðið er upp á þarf fyrirtækið að vinna með margs konar persónuupplýsingar, í ýmiss konar tilgangi og á grundvelli ólíkra heimilda. Þetta eru þær persónuupplýsingar sem við öflun beint frá þér en við öflum engra upplýsinga um þig annars staðar frá:

Tengiliðaupplýsingar: þ.e. nafn, heimilisfang og netfang: Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar svo hægt sé að tryggja að við sendum þær vörur sem eru keyptar á réttan stað, til að gefa okkur kost á að eiga í samskiptum um vörukaupin og til að tryggja að réttur viðskiptavinur sé skráður sem kaupandi, svo sem vegna reikningagerðar og ef kemur til vöruskila. Þá vinnum við einnig með þær vegna beinnar markaðssetningar ef þú hefur skráð þig á póstlista okkar til að fá tilboð frá okkur.

Greiðsluupplýsingar: Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum. Í lok pöntunar ertu áframsend/ur á greiðslusíðu kortagáttar sem sendir okkur tilbaka staðfestingu á að skuldfærsla á greiðslukortið hafi tekist og þær upplýsingar vinnum við með í bókhaldslegum tilgangi. Því er okkur nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin og vegna lagaskyldu okkar, svo sem samkvæmt lögum um bókhald.

Upplýsingar um vörukaup þín hjá okkur, þ.e. hvaða vörur þú keyptir, hvenær og fyrir hvaða upphæð: Við vinnum með þessar upplýsingar, eins og með tengiliðaupplýsingarnar, sbr. hér að framan, í þeim tilgangi að geta selt og sent þér viðkomandi vörur og til að geta staðið við lagaskyldur okkar.

Auk þess að vinna með persónuupplýsingar notum við margs konar ópersónugreinanlegar upplýsingar til að starfrækja vefverslunina, t.d. tölfræðilegar upplýsingar um hvenær viðskiptavinir okkar versla hvaða vörur o.s.frv. Engar slíkar upplýsingar er hægt að rekja til tiltekins viðskiptavinar heldur er einungis um að ræða ópersónugreinanlegar upplýsingar um hópa viðskiptavina.

Miðlun persónuupplýsinga

Þeim persónuupplýsingum um þig sem við vinnum með vegna vefverslunarinnar miðlum við ekki til þriðja aðila, svo sem til utanaðkomandi vinnsluaðila til dæmis til geymslu eða bókhaldsþjónustu, nema í eftirtöldum tilvikum:

Netföngum um þá sem óska eftir að fá tilboð í tölvupósti er miðlað til fjöldapóstsendingarþjónustu sem starfar innan EES.

Bókhaldsgögn eru afhent endurskoðendum okkar eftir því sem þeir kunna að óska eftir lögum samkvæmt.

Við áskiljum okkur rétt til að hlíta fyrirmælum þar til bærra íslenskra dómstóla og eftirlitsstofnana um afhendingu gagna, þar á meðal þeirra sem kunna að innihalda persónuupplýsingar.

Geymslutími

Geymslutími þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum með ræðst af þeim tilgangi sem þeirra er aflað í og þeirri heimild sem vinnslan byggist á. Þannig geymum við tengiliðaupplýsingar þínar ásamt upplýsingum um skráningu á póstlista á meðan þú ert skráður notandi vefverslunarinnar. Rétt er að ítreka að notendur geta afskráð sig hvenær sem er og lokað aðgangi sínum fyrirvaralaust.

Við vinnum með upplýsingar um vörukaup þín ásamt greiðsluupplýsingum, þ.e. skuldfærslustaðfestingar frá færsluhirði, í þann tíma sem okkur er skylt vegna ákvæða í lögum um bókhald í lögum, þ.e. nú í minnst 7 ár en ekki lengur en í 10 ár.

Réttindi þín

Þar sem við vinnum, eins og kemur fram hér að framan, með persónuupplýsingar um þig þá hefur þú réttindi sem mikilvægt er að þú vitir af:

Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum þínum hjá okkur, láta okkur leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta okkur eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær. Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd, sbr. nú 17. og 20. gr. laga nr. 90/2018, Þá átt þú samkvæmt síðarnefndu lagagreininni rétt á að flytja eigin gögn eða að við takmörkum vinnslu persónuupplýsinga um þig, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Þú átt einnig rétt á að andmæla vinnslunni skv. 21. gr. laganna.

Þú átt rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa hennar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík og netfang hennar er postur@personuvernd.is.

Varnarþing

Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir Héraðsdóm Reykjavíkur.


Ábyrgðaraðili vinnslunnar og samskiptaupplýsingar

Náttúrurúma ehf. kt. 580621-0900, er ábyrgðaraðili þessarar vinnslu persónuupplýsinga og erindi sem tengjast vinnslunni er hægt að senda í tölvupósti á netfangið matti@matti.is

 

Þessi útgáfa er frá 09.11.2022

 

Skilmálar fyrir vafrakökur (Cookie Disclaimer)

Vafrakökur (Cookies)

EFTIRFARANDI Á VIÐ NOTKUN Á VAFRAKÖKUM Á VEFSÍÐU Naturalmat.

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem geymdar eru á vafra notenda. Naturalmat notar vafrakökur á vefsíðu sinni til að auðkenna notendur. Notkun á vafrakökum gerir okkur því kleift að veita notendum betri upplifun og stuðla að frekari þróun vefsíðunnar.

Vafrakökur hafa ólíkan tilgang en sumar þeirra eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsvæða. Þær kökur eru ekki háðar samþykki notenda heldur byggir notkun þeirra á lögmætum hagsmunum SRF, sem felast í því að geta veitt góða upplifun á vefsíðu sinni og til að stuðla að frekari þróun hennar. Aðrar vafrakökur eru notaðar t.d. vegna greininga á vefsvæðum, fyrir stillingar á vefsvæðum og markaðssetningu. Notendur þurfa að veita samþykki fyrir notkun á þeim vafrakökum.

Vafrakökur hafa einnig ólíkan gildistíma. Ákveðnar vafrakökur virka einungis á meðan vafri er opinn og er eytt þegar honum er lokað (e. session cookies) en aðrar vafrakökur hafa lengri gildistíma. Notendur geta lokað á vafrakökur með því að breyta stillingum á vafra. Með þeim hætti geta notendur dregið til baka samþykki sitt fyrir notkun á vafrakökum. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, þ.m.t. nauðsynlegar kökur, mun það hafa áhrif á virkni vefsíðunnar.

Við notum vafrakökur í þrennum tilgangi:

  • Nauðsynlegar vafrakökur. Án þeirra virkar síðan ekki. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru notaðar hér.
  • Mælingar vafrakökur. Við notum Google analytics og Google Tags til að fylgjast með notkun og umferð á síðunni. Við skoðum upplýsingar um heimsóknir á síður, hvar gestur er staðsettur í heiminum og í hvaða tæki viðkomandi er.
  • Markaðssetningar vafrakökur. Við notum Facebook Pixel og Google Tags í auglýsingaskyni.